Færsluflokkur: Bloggar
24.1.2007 | 19:52
Tókum Túnis á seiglunni - gleraugnaglámur?
stundum lítill miðað við þá leikmenn sem leika með því; Guðjón Valur besti leikmaður þýsku
deildarinnar og Óli Stef. ein besta vinstri handar skytta heims o.fl. Jæja, nú getum við unað sátt við
árangurinn, hver sem hann verður því við höfum fyrst og fremst sýnt það að við stöndum jafnfætis
flestum öðrum þegar kemur að handbolta (kannski nær Eiður að lyfta knattspyrnulandsliðinu á hærra
plan

Annars er það helst að frétta að ég tók núna rétt áðan plastið af lyklaborði fartölvunnar minnar sem
ég er búinn að eiga í næstum hálft ár núna. Er þó enn með plastið aftan á skjánum, sé ekki að það saki að spara slitið á henni

Svo fer ég til augnlæknis á föstudag til að láta mæla í mér sjónina. Það gæti verið að ég láti verða af
því, loksins, að fá mér gleraugu. Til dæmis sótti ég Gunnhildi út á flugvöll í morgun og flestir kannast
við skiltið sem vísar á komur og brottfarir; en málið er að ég sé ekki á skiltið fyrr en um seinan og því
verð ég einfaldlega að vita að beygja skal til vinstri. Að auki þreytast augun mikið í bíói eða í
kennslustundum.
Reyndar fór ég til augnlæknis í gær, þriðjudag, en þurfti að bíða dálitla stund og taldi mig ekki hafa
tíma fyrir skoðunina þegar loksins koma að mér. Því rauk ég af stað niður í MR en þegar þangað var
komið ráku nemendur upp stór augu og sögðu að langt væri í stærðfræðitímann; klukkan var
nefnilega korter yfir tólf en ekki korter yfir eitt, eins og ég hélt

Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2007 | 21:39
Fljúgandi flugur
http://www.danica.com/flytier/
Svakaflott safn. Njótið
Gæti tekið upp á því að hnýta nokkrar flugur sem þarna er að finna og hlusta um leið á nokkrar flugur
(góður þessi, var það ekki, Svenni og Beggi?)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2007 | 18:06
Gleðilegt ár :D
sjálfur. Þakka liðið og óska ykkur farsældar á komandi ári

Kennsla hafin sem og nýtt hjólaár. Ætla að vera duglegur að komast í fyrra hjólreiðaform. Þó er þetta
ekki nýársheit, eins og sumum finnst nauðsynlegt að strengja til að koma einhverju í verk. Hef aldrei
skilið svona flipp; annað hvort tekur maður ákvörðun um að gera eitthvað eða ekki. Og þeir sem eiga
í erfiðleikum með að gera eitthvað líður hvort sem er þá bara verr þegar það mistekst. Einnig finnst
mér að fólk eigi ávallt að reyna að bæta sjálft sig; ekki bara hugsa um að gera það á áramótunum...
Nóg um það, góðar stundir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2006 | 12:02
Þar kom að því...
verkefnum í kennslufræðinni. Allt hafðist þetta einhvern veginn og er einkunnaafhending í MR í dag.
Jibbí

Fór svo með hjólið í viðgerð í morgun. Var að hjóla heim um daginn þegar hjólið tekur upp á því að
skipta um gíra með sekúndu millibili. Þegar heim var komið tók ég eftir því að tannhjólin á afturdekkinu
voru laus og þegar ég sneri þeim þá hringlaði í þeim. Það besta var samt eftir: þegar ég tók
afturdekkið af þá hrundu tannhjólin af og legurnar [pínulitlar kúlur] fóru út um allt. Ætlaði sjálfur að
reyna að gera við þetta en það er víst varla í mannlegu valdi. Fór því með hjólið til skapara þess og
kom þá í ljós að skrúfa sem á að halda tannhjólunum í skorðum fyrirfannst ekki. Bömmer.
Ojæja. Er búinn að sannfæra mig um að ég hafi engu klúðrað þegar ég skipti um dekk og ætla því ekki
að borga krónu fyrir nýtt tannhjólasett. Sjáum hvernig það fer.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2006 | 23:04
Algjör nagli!
gangstéttum borgarinnar. Komst nefnilega að því að sökudólgurinn að sprungna dekkinu var glerbrot
úr grænni flösku. Vona að Bragi Sveins lesi þetta og taki til sín því í sumar, þegar við og Beggi vorum
á skralli niðri í miðbæ Reykjavíkur tók Bragi upp á því að fleygja umræddri glerflösku [nei smáspaug,
örugglega ekki brot úr þeirri flösku] og glasi í götuna með þeim afleiðingum að hvort tveggja fór í þúsund
mola. Gerði hann þetta eftir að við hittum Tuma og Mary Frances kærustu hans en sú varð frekar
smeyk við þenna ofbeldismann. Ætla reyndar að geyma brotið og ef til vill sýna Braga snaga þegar við
hittumst næst. Að sjálfsögðu mun ég sýna glerbrotið þeim sem vilja sjá og kannski líka þeim sem ekki vilja

Alla vega eru nú nagladekk komin undir hjólið, takk fyrir! Þetta er barasta ekkert mál ef í lagi þykir að
óhreinka sig á höndunum. Reyndar kostuðu bæði dekkin samtals 13 þúsund kall sem ég umreikna
gróflega yfir í 4 viskíflöskur. Tók ekki nema svona þrjú korter með öllu. Reyndar var mesta púlið að
pumpa í dekkin aftur því gríðarlegan þrýsting þarf í dekk á hjóli. Tvöfaldan þrýsting dekkja á bíl.
Geðveikt! Pumpan varð sjóðheit. Við erum að tala um 40 til 65 pund [á fertommu] en þar sem þetta
eru nagladekk setti ég 40 pund í hvort dekk.
Get nú loksins farið að hjóla aftur

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.12.2006 | 14:02
Hún á afmæli í dag ...
hversu mikið sem hún reynir þá nær hún mér ekki, hahahaha...
Til hamingju ástin mín. (L)
Fer svo í afmæli í dag til MIB sem varð tveggja ára í gær. Hlakka mikið til að hitta heimilisfólk þar sem of
langt er síðan ég kom síðast í heimsókn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2006 | 23:26
Féll kylliflatur
Hins vegar féll ég kylliflatur í bókstaflegri merkingu í dag [fimmtudag 7.]. Og alveg kylli-, kylliflatur. Var
á heimleið frá MR í dag og var með tölvuna á bakinu og fullar hendur; taska, bækur í poka, mappa og
slatti af gömlum prófum. Var að nálgast bílaplan nemenda (mjög gróf möl) þegar mér fannst eins og
band væri strengt fyrir hægri fótinn. Reyndi að lyfta honum hærra
upp en hann var pikkfastur og þar
sem ég var á nokkuð hröðum gangi þá datt ég beint fram fyrir mig; tókst að setja annan
arminn fyrir mig en hruflaðist aðeins á báðum höndum og bólgnaði upp á þeirri vinstri. Og ég lá svo
hressilega kylliflatur að ég skrámaðist á neðanverðum lærunum, rétt fyrir ofan hné.
Og hvað olli? Jú, hafði stigið á svona plastræmu sem oft er sett utan um pappakassa; stíft plast sem
er um sentimetri á breidd og 1-2 millimetrar að þykkt. Og þegar ég steig á helvítið með vinstri fæti þá
lyftist það upp og myndaði eins konar lykkju sem ég síðan smellti hægri fæti í.
Jæja, ég lifi þetta nú af. Hehe, vona að enginn haldi að ég sé stórslasaður, bara skrámaður
og bólginn.

í nótt 16 marka, 52 cm langa stelpu. Vona að allt hafi gengið vel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2006 | 18:18
Sprungið dekk og jóladagatal
fara á hjólinu í MR, heilsunnar vegna. Svo ótrúlega skemmtilega vildi til að sprakk á afturdekkinu.
Mmm, hvað er ánægjulegra en að skipta um afturdekk? Hressandi :D Ætla reyndar að bíða eftir því að
nagladekkin komi í búðir, voru nefnilega ekki til í síðustu viku.
Jæja, það hlaut að koma að því að það spryngi svo ég ætla alls ekki að spæla mig á því. Sérstaklega
ekki af því að ég fékk núna rétt áðan finnskt súkkulaðidagatal frá Gunnhildi

þar til hún kemur heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2006 | 22:42
Alltaf hressandi að hjóla
Fannst það góð hreyfing og hressandi. Ákvað því þegar ég kom heim að fara allra
minna ferða á þann mátann, þar sem "Litli hvítur" hafði gefið upp öndina um áramótin. Fjárfesti því
í nýju fjallahjóli [án drullubretta, keypti þau sér. Hvernig dettur þeim það í hug!]
En öllum að óvörum snjóaði hressilega um miðjan nóvember!

í hug að á Íslandi snjóaði á veturna? Ég var nokkuð viss um að það væri liðin tíð, sökum
gróðurhúsaáhrifanna títtnefndu.
Hafði þó heyrt af vönum hjólreiðakappa, honum Erling, að ekkert mál væri að hjóla á hálku; maður
fengi sér bara nagladekk og væri eins og límdur við götuna. Erling algjör nagli með rass úr stáli.
Ákvað þó að láta reyna á að hjóla án naglanna og sjá hversu erfitt þetta er. Og viti menn,
ekkert mál; ég þarf engin nagladekk ef ég bara fer varlega!
Hjólaði í um 5 mínútur og stóð á hjólinu. Kom þá upp á mikinn klaka sem ég fann að framdekkið
hafði ekkert grip á. Ætlaði þá að stíga niður af hjólinu en auðvitað rann ég þá bara og flaug
allhressilega á hliðina. Frekar vont

reyndar helaumur í síðunni og marðist lítillega á olnboganum, en ég er eins og vampírurnar;
sárin gróa þótt ekki gerist það á jafnundraskömmum tíma. Ákvað því að drífa í því að fá mér
nagladekk og reyna þetta ekki aftur, í öllu falli ekki með fartölvuna á bakinu [sem ég hafði
að sjálfsögðu vit á í þetta skiptið]
En ég hélt nú áfram og komst að lokum heim. En á Bústaðavegi var bílstjóri sem var utan við sig í
beygju og ætlaði að keyra mig niður. Sá ég hann taka beygjuna og þegar hann nálgaðist heyrði ég
hvernig hann gaf inn bensín og var þá ljóst að hann hafði ekki séð mig. Hugsaði ég þá með mér að
andskoti væri ég nú heppinn að vera með hjálm, fyrst á annað borð einhver ætlaði að keyra mig
niður. Kona var í farþegasætinu og sá ég hana gretta sig allsvakalega og setja hendurnar fyrir
andlitið. En betur fór en á horfðist og náði bílstjórinn að nauðhemla og stoppaði rétt rúmum
metra frá mér.
Enda var hann á nöglum...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.11.2006 | 21:14
Halló amma !

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
"Ef ég sé með hattinn, kemst ég sko örugglega í stuð"
Tenglar
(Ó?) Áhugaverðir tenglar
- xkcd - snilld!
- http://
- Vötn og veiði Vefur Guðmundar Guðjónssonar
- Stangó
- Laphroaig Gríðarlega gott viskí
- Mathworld
- Myndir Kínófíls
- MR
- KR getraunir Við erum KR-ingar - við tippum
- KR Allir sem einn
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar