"Nei, fyrirgefðu: talan er B15 en ekki B5. Hahaha, ég hélt nefnilega fyrir ásinn."

Var að koma heim af bingói Framtíðarinnar í MR. Það var haldið í Íþöku en hún hefur að sjálfsögðu ekkert breyst þótt 5 ár séu liðin síðan ég steig þangað síðast inn. Ég var alls ekki í æfingu, enda komin 6 ár síðan ég spilaði bingó síðast, og kom því heim tómhentur. Varð ekki einu sinni var, eins og maður segir.

 En þannig er nú það að fyrir 6 árum þegar ég spilaði síðast bingó var það einmitt á vegum Framtíðarinnar og fór það fram í Cösu. Titill þessarar færslu er einmitt tilvitnun í úrslitabingóið það kvöld þegar langur bingóbráðabani hafði farið fram milli mín og annarrar stelpu. Segist ég alltaf hafa unnið utanlandsferð í 15 sekúndur því með tölunni B5 hefði það gerst. En helv**** fíflið ...

 Nei, ég er ekkert spældur í dag. Ég er nú eiginlega búinn að gleyma þessu. Ef minnst er á bingó þá á ég það til að segja ekki þessa bingósögu. Talan B15 kom jú upp og  og stelpan því réttmætur sigurvegari hvort sem mér líkar það betur eða verr.

 AUÐVITAÐ LÍKAR MÉR ÞAÐ VERR!!! ÉG Á LÍKA ENN EFTIR AÐ FÁ SÖNGBÓK FRAMTÍÐARINNAR SEM KYNNIRINN LOFAÐI MÉR Í SÁRABÆTUR Angry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er hægt ad segja ad maður sé í bingó "æfingu"??? Ég bara spyr ...

Gunnhildur (IP-tala skráð) 18.11.2006 kl. 14:35

2 identicon

Þannig að þú fékkst þínar 15 sekúndur af stórkostlegheitum.
Ertu ekki bara sáttur við lífið í dag? ;)

Mummi (IP-tala skráð) 20.11.2006 kl. 19:42

3 identicon

Sá annars þessa "frétt"
Þú hefur kannski áhuga á að ganga í samtökin?

 http://baggalutur.is/frettir.php?id=2168&d=20&m=11&y=2005&start=0

Mummi (IP-tala skráð) 20.11.2006 kl. 20:22

4 identicon

Hvað er þetta, maður þarf að"finna" síðuna þína á blogginu hjá Mumma og Ásu til þess að fá að vita af henni..og svo er ég bara í tenglum og alles.

Gaman að lesa þetta hjá þér, segi það sama um bloggið hennar Gunnhildar.

Og bingó, það hef ég ekki spilað lengi 

Maria (IP-tala skráð) 22.11.2006 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

"Ef ég sé með hattinn, kemst ég sko örugglega í stuð"

Höfundur

Baldvin Einarsson
Baldvin Einarsson
Tón-, fræða- og matgæðingur
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband