Gaman að fá bronsið í dag. Héldum haus á móti Pólverjunum. Við erum með annað besta liðið í heiminum í dag, svo einfalt held ég að það sé. Það var hending ein sem réði því að við spiluðum við Frakkana í undanúrslitunum en ekki í la grande finale. Við erum með alla vega jafngott, ef ekki betra lið en Króatía og öll hin liðin.
Jæja, annars er minns kominn á gott skrið með að prjóna eitt stykki lopapeysu. Allt að koma, meira að segja búinn að tengja ermar við bol og er að byrja á munstri á öxlum. Hef náttúrlega prjónað helling af húfum, hosum og vetlingum og fannst tími til kominn að skella mér á peysu. Valdi gott munstur í Lopablaði númer 29 og dreif í þessu. Keypti prjóna og garn og hófst handa. Svo held ég að galdurinn sé að nota tímann eins vel og mögulegt er. Horfi orðið ekki lengur á sjónvarpið án þess að vera með prjóna í hönd. Finnst annað orðið tímasóun, nema myndin sé þeim mun hrikalega betri.
Júmsepípoj. Hvernig væri að fara að blogga reglulega? Nei, held mig við svona handahófskenndar færslur. Þetta er sennilega ekki til að fjölga lesendum, en hefði ég áhuga á því þá myndi ég byrja að svara "fréttum" á mbl.is í gríð og erg. Hef ákveðið að láta vitleysuna þar á bæ ekki taka meiri tíma af mínu lífi. Les þó flippið en smelli ekki á hlekki ef fyrirsögnin er furðuleg eða er ekki lýsandi. Að auki er ég hættur að skoða fréttir um samband Brad Pitt og Angelinu Jolie. Þar tókst mér að spara góðan tíma.
Jibbí kóla, ég bind miklar vonir við þennan leik þar sem fyrirrennararnir voru algjörlega frábærir. Í þeim fyrsta sá Orson Scott Card um samræðurnar sem voru stórgóðar og fyndnar. Ég gæti jafnvel tekið mig til og fjárfest í þessum leik, nokkuð sem ég hef ekki gert í um 19 ár, eða svo.
Hehe, svakalega er maður orðinn gamall; 19 ár síðan. Svipaða tilfinningu fæ ég þegar ég segist vera búinn að veiða með Mumma frænda hátt í 25 ár. En þá verður maður líka að bregða sér í líki Sigfinns gamla í Spaugstofunni.
Sjóðheitur,
B
Hvaða kröfur eru gerðar til penna á mbl.is? Að auki má spyrja sig að því hvort greinar séu yfirfarnar áður en þær eru birtar. Slíkt ætti ekki að taka mikinn tíma og myndi forða höfundinum, eða öllu heldur [oft lélegum] þýðandanum, frá hneisu:
"Til er þjóðsaga á svæðinu sem hermir að menn og drekar afkomendur  tvíbura og að því hafi þeir lifað öldum saman í sátt og samlyndi."
Á milli orðanna "afkomendur" og "tvíbura" er tvöfalt bil og því grunar mig að þar eigi fleyg orð að koma í stað eyðu. En þessi setning lítur ákaflega illa út. Hér er væntanlega verið að þýða grein og höndunum kastað til verksins.
Svona stíl á ekki að greiða há laun fyrir. Kannski er það vandinn. Jæja, þetta verður síðasta færslan mín um þessi mál. Er búinn að eyða, já EYÐA, allt of miklum tíma í þetta bull; bæði við lestur upphaflegu greinarinnar sem og við þessi skrif.
B
Hér í Santa Barbara, Kaliforníu, er enn ekki búið að ná tökum á eldinum sem geysar í hlíðunum. Á miðviku- og fimmtudag varð allt vitlaust þegar eldinum fannst vindurinn eitthvað óþægilegur og komst hann á gott skrið. Aldrei hef ég séð eld ferðast jafnhratt og leist bara ekkert á blikuna. Einhvern veginn komst eldurinn yfir hraðbraut, sennilega fljúgandi glóð um að kenna. Annars erum við Íslendingarnir ekki í neinni hættu en mjög margir hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Svo hafa fleiri hús brunnið og íþróttahús skólans er fullt af flóttafólki. Veit satt að segja ekki hvort það verði af fótboltaleiknum á næsta mánudag.
Eins og sést á myndunum þá var þessi eldur gríðarlega stór og komst alla leið inn í mannabyggðir. Í fyrstu var þetta pínulítið svæði sem brann en svo hitti kúkurinn viftuna. En eitthvað er nú að draga úr þessu núna. Sagt er að hagstæðir vindar og kaldara loft leiði til þess að auðveldara sé að ná tökum á þessu. Gott mál.
Nei, grín. Ég er ekki kominn með skalla en hins vegar var ég skallaður í fótboltaleik fyrir skömmu. Fékk þetta líka fína glóðurauga. Náði að koma í veg fyrir mestu bólguna með því að kæla þetta af og á í tvo tíma. Hins var ég skallaður á kinnbeinið og því bólgnaði ég ansi mikið að innan og gat því varla opnað munninn. Borðaði af þeim sökum aðeins jógúrt og ávaxtadrykki í tvo daga. Er þó að jafna mig og get borðað dauð dýr á ný.
Sá Barcelona mala Real Madrid á laugardaginn síðasta. Hvílíkur leikur! Var staddur á breskum pöbb með Grace og Tomàs. Allt ætlaði um koll að keyra þegar mörkunum var raðað inn. Gríðarlega gaman að horfa á svona leiki með öðru fólki.
Jibbíkóla. Kominn aftur til Kaliforníu eins og æði margir hafa bent mér á. Er orðinn elgtanaður eftir hjólreiðar, hlaup og síðast en ekki síst frisbígolf. Er hér um frábæra íþrótt og tómstundaiðju að ræða. Hvet fólk til þess að prófa:
http://folfis.blogspot.com/ á Íslandi,
diskarnir: http://www.innovadiscs.com/og
http://www.pdga.com/ fyrir ýmislegt tengdu íþróttinni.
Annars kaupi ég diskana mína í gegnum http://www.discgolfcenter.com/ .
Svo dró tið tíðinda í janúar á 9 holu IV vellinum, sem geymir reyndar mjög stuttar brautir, þegar ég fór holu í höggi, eða réttara heldur holu í kasti. Týndi reydnar þeim diski þremur dögum seinna í síki á 18 holu Evergreen vellinum. Það er á holu 10 sem diskar týnast gjarnan. Týndi einmitt einum hvítum fyrir tveimur vikum. Ég merki diskana í bak og fyrir, set íslenska fánann og netfang framan og aftan á diskana ásamt nafni á um 10 stöðum. Fékk svo skeyti úr síma einhvers dúdda sem hafði fundið hann og látið mig vita. En þegar ég komst loks í að hringja í hann var hann ákaflega miður sín og sagðist ekki vera með diskinn minn lengur. Þegar hann var að labba til baka á einni brautinni sá hann gaura vera að leita að diski á sama stað og hann hafði fundið diskinn minn. Spurði hann þá hvort þá vantaði hvíta gasellu með fána á. Jú, það kom heim og saman, þeir sögðust einmitt eiga þann disk, tóku diskinn og þökkuðu fyrir! Með íslenska fánann bak og fyrir! Þetta eru durtar og dusilmenni sem tóku diskinn minn og óska ég þeim krabbameini í eistum. Gaurinn sem fann diskinn minn var auðvitað miður sín og sagðist myndu ganga betur úr skugga hvort réttur eigandi væri, næst þegar hann finnur disk. En ég þakkaði honum hins vegar vel fyrir og sagði að svona framkomu gauranna vildi maður ekki gera ráð fyrir, heldur væntir meiri heiðarleika af fólki.
Alla vega, einhverjir eru að nota disk með nafni mínu á 10 stöðum, netfangi og íslenska fánanum bak og fyrir. Magnað að hafa góða samvisku í slíkt. Nú vita 15 félagar mínir af þessu og þeir þekkja diskana mína mjög vel. Þeim þykir gaman að gera grín að mér fyrir að merkja þá svo vel, en allt kom fyrir ekki.
Þennan póst hef ég ætlað að skrifa í um einn og hálfan mánuð. Skemmtilegt hvað það tekur langan tíma að koma sér að verki. Lofa engu um áframhaldandi ritræpu. Yfir og út...
Ég vil hvít jól þetta árið. Ekki fæ ég ósk mína uppfyllta hér í Kaliforníu og því þarf ég að fara heim á klakann. Kem þann 17. desember.
Svo er aðalstuðið fólgið í því að skella sér upp í flugvél um eftirmiðdaginn þann 1. janúar á nýju ári. Það verður upplifun.
Miðinn var mjög ódýr. Ekki.
Hlakka mikið til að hitta vini og vandamenn. Sjáumst hress og kát, það þýðir ekkert annað.
Alveg magnað að Obama karlinn hafi náð kjöri. Og það með yfirburðum. Fór í afmælis-/kosningateiti hjá einni stelpu í deildinni og var skálað í kampavíni þegar ljóst var hvert stefndi. Mjög skemmtilegt kvöld. Einnig var getraun þar sem fólk átti að lita fylking rauð eða blá eftir því hvorum frambjóðandanum þau féllu í hlut. Er skemmst að segja frá að ég var (ásamt tveimur öðrum Könum) efstur á lista þar sem aðeins skeikaði einu fylki. Þar sem ég er ekki frá Ameríkulandi þá finnst mér ég hafa unnið.
Annars voru magnaðir skógareldar hér í síðustu viku. Á meðfylgjandi mynd má sjá hversu heitt okkur varð! Nei, bara grín. Þetta er ekki húsið okkar en aftur á móti er þetta hús bara rétt hjá miðbæ Santa Barbara. Frekar spúkí að yfir hundrað heimili í Montecito (þar sem Oprah og John Cleese eiga heima) hafi brunnið til kaldra kola. Hann Rob Lowe missti víst húsið sitt, greyið.
Á fimmtudaginn fengum við á Coolbrook lane okkar fyrsta flóttafólk. Helmingur stelpnaskarans úr Hausdorff (gælunafn hússins þeirra) gistu hjá okkur þar sem mikill reykur og aska gerði það að verkum að óþægilegt var að anda inni hjá þeim. Þær Ellie (í stærðfræðideildinni og er kærasta Jons sem leigir með okkur) og Sonja (önnur stelpa í stærðfræðinni, eða réttara sagt kona þar sem hún er yfir þrítugt hehe), gistu hjá okkur á fimmtudaginn. Við fengum reyndar eitt stykki kött í þokkabót en honum skelltum við inn til Jons svo að hann skítaði bara út teppið hjá honum. Nei, ég segi nú bara svona. Kötturinn er fínn, hann skiptir hins vegar um öll líkamshár á um það bil viku fresti.
Er byrjaður að spila tennis við liðið í deildinni og gengur frekar illa. Held að ég hafi verið betri í Svíþjóð þegar ég var 7 ára.
Ég býð Gumma Ben hjartanlega velkominn aftur í KR. Get alveg fyrirgefið honum að hafa spilað með Val. Hann hefur mjög góðan og sterkan persónuleika og er mikill akkur fyrir félagið.
Svo finnst mér hann bera af öðrum í lýsingum á knattspyrnuleikjum. Ég þoli nefnilega ekki þegar Arnar Björnsson byrjar að bulla um hvort brot hafi átt sér stað því taka þurfi tillit til þess hvort leikurinn sé mikilvægur eður ei. Brot er brot og sé það innan teigs þá er einfaldlega víti. Þurfi að reka leikmann af velli fyrir augljóst brot þá er það ekki dómarinn sem "skemmir" leikinn heldur leikmaðurinn sjálfur. Svo í þokkabót er enginn leikur eyðilagður eins og Arnari finnst gaman að góla. Reglurnar eru hluti af leiknum og ég bara skil ekki hvert vandamálið er þegar einn til tveir leikmenn fá rautt spjald og ef til vill dæma þarf víti. Þannig fer þá sá leikur og þar við situr. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta leikur með ákveðnum reglum og hið skemmtilega í þessu er að allt getur gerst, og þá sem hluti af leiknum.
Jæja, ég missi mig alltaf þegar ég hugsa til hvað fólk getur bullað mikið. En þess vegna hef ég einmitt verið svo ánægður með Gumma Ben því hann er svo dásamlega laus við alla vitleysu og stæla. Hann bara spilar sinn fótbolta og veit út á hvað þetta gengur.
Enn á ný vertu velkominn!
Jibbí. Og stend við það. Hvet landsmenn til áframhaldandi bjartsýni. Þetta reddast. Er annað hvort í Santa Barbara eða LA. Hvað í ósköpunu fær fólk til þess að lesa þetta blogg annars? Er svo latur að skrifa að hætta ætti þessum skrifum. Svo er ég ekki einu sinni fyndinn í þessum pósti, og hann lengist bara við hvert orð skrifað. Þetta er ófyrirgefanlegt, eins og Árni Indriða myndi segja.
Nei, bíðum við. Ég get bætt nokkru við þennan póst. Meðfylgjandi er mynd af Íslendingum í Santa Barbara úr teiti sem var haldið í höllinni okkar Jóns, Sveins, Eyrúnar og Jonathan. Allri stærðfræðideildinni var boðið sem og eðlisfræðinni og tölvunarfræðideildinni. Gríðargott geim, eins og sést á myndinni.
Bý sem sagt á 465 Coolbrook Lane, Goleta, CA 93117 í gríðarstóru og góðu húsi ásamt þremur Íslendingum og einum Kana. Þétt.
Behave
Var tjáð um daginn að bloggið mitt væri dautt. Rangt. Jæja, kannski rétt svo við lífsmark. Var nefnilega í matarboði hjá Óla um daginn og sagði hann mér að samkvæmt blogginu væri ég enn í Santa Barbara. Þetta er bersýnilega ekki sannleikanum samkvæmt þar sem ég er staddur á klakanum... til 20. ágúst. Hef frá 19. júlí upplifað ýmislegt:
Veiddi 17-18 punda dreka í Laxá í Aðaldal á klassíska Silver Wilkinson einkrækju númer 1/0, hnýtta af sjálfum mér. Andri, bjallaðu í mig í síma 6929493 upp á klassískar flugur. Náði líka öðrum 8 punda. Besta við þann túr var reyndar að komast aftur í veiði með Mumma frænda. Fórum við svo í enn meiri veiði og veiddum nóg af dýrindis laxi og bleikju. Allt verður þetta etið, að sjálfsögðu.
Gekk Laugaveginn í góða vina hópi. Fékk meira að segja Kanana tvo, þær Brittany og Aletheu með. Fengum gríðarlega gott veður og höfðum meira að segja bjór með pulsunum þar sem trússbíll var með í för. Kunnum við Tomma miklar þakkir fyrir aksturinn.
Svo hef ég verið með aðstöðu niðri á Hafró í sumar og komið ýmsu í verk varðandi námið. Ég er farinn að hlakka til að demba mér í fiskistöppuna þar ytra og halda áfram að skrifa greinar og slíkt.
Endurnýjaði kynni mín af prjónum. Er að leggja lokahönd á húfu sem ég mun ekki nota í Santa Barbara. Hins vegar ætla ég að standa við stóru orðin og prjóna lopasmokk handa Begga af því hann gerði svo mikið grín að mér. Það verður nú ekki mikið mál því ég er orðinn svo góður og svo þarf smokkurinn ekki að vera mjög stór.
Nú, tel mig hafa gert vel með þessum pósti. Ég mun sennilega breyta honum svo ekki sjáist taki ég eftir einhverju mikilvægu sem vantar. Yfir og út...
að fótum sér. Kannski væri réttara að segja að ég væri búinn að
leggja öldurnar að bumbu mér, þar sem ég var að mestu á mallanum.
Jæja, það sem ég vil að komist til skila er að ég fór á brimbretti
síðasta sunnudag með Jóni Karli, félaga mínu. Gekk alveg prýðilega
að mínu mati. Ég fékk alla vega smátilfinningu fyrir hvernig
kvikindið hegðar sér í vatninu og hvernig halli hefur á stefnuna og
fleira. Mér tókst að standa upp á brettinu tvisvar og þóttist ég
standa mig vel. Það var reyndar ekki fyrr en eftir talsvert margar
ferðir á maganum að mér varð hugsað til Steina: ef ég flýg ekki
hressilega á hausinn við að reyna eitthvað sem er mér ofviða þá er
ég ekki að taka nógu vel á því og mun ég því ekki taka miklum
framförum. Ákvað ég að segja skilið við litlu öldurnar og fór út
fyrir öldurnar og reyndi að ná nokkrum stórum.
Í fyrstu var ég smeykur við að vera fyrir þeim reyndari en svo
áttaði ég mig á því að ég var sá ysti. Þar með þurftu aðrir að passa
sig á mér. Ha! Nei, að öllu gríni slepptu þá gett mér ágætlega að
stýra í gegnum öldurnar og stóð að lokum uppi á brettinu í nokkrar
sekúndur. Vil reyndar bæta við að ekki var nema um jafnvægisskynið
að ræða en ekki neinar hundakúnstir. Þær koma síðar.
Jæja, gott fólk. Ég kem heim á klakann þann 19. júní. Reynar fer ég
beint í veiði en ég hlakka mikið til að sjá vini og vandamenn. Vona
Í síðust viku átti ég stefnumót við afskaplega magnaða dömu. Um nokkurra vikna skeið hafði ansi
mögnuð könguló, nánar tiltekið svört ekkja, hreiðrað um sig í fataskápi hjá Aletheu og þremur
öðrum stelpum hér í Santa Barbara. Okkur Aletheu tókst að góma hana í Tupperware-box og má sjá
staðfestingu á því hér. Ekki vildum við deyða svo tignarlega könguló, enda eru þær seinþreyttar til
vandræða þótt baneitraðar séu. Keyrðum við því með hana upp í fjallshlíð og slepptum. Gekk það
reyndar eitthvað brösuglega en hafðist á endanum. Mæli með að mannskapurinn kynni sér þessar
skepnur þar sem þær fyrirfinnast ekki á klaknum, sem og öll önnur eitruð skordýr.
Jamms, titillin kemur frá lítilli telpu sem sá mig í stórmarkaði í fullum skrúða. Ég var með hattinn minn,
hring, skyrtu, brúnan leðurjakka og síðast en ekki síst, ógnarflott kúrekastígvél og var á leið á krá að
dansa línudans. Eitthvað var hún nú smeyk við mig þrátt fyrir að ég reyndi að brosa og veifa til hennar
en hún var sem stjörf, hljóp til ömmu sinnar og gólaði fyrirsögnina í um það bil tveggja metra fjarlægð
frá mér. PRICELESS!
[Teningunum er kastað] Svo mælti Júlli Cesar þegar hann fór yfir Rúbíkon-fljótið í átt að Róm.
Nei, annars, þetta átti að vera svalur titill. Kannski er hann það en málið er að ég á ammli í dag. Ég er
teningur. Og ekki nóg með það heldur er ég einnig n^{n}, þar sem n=3. Það gerist næst þegar ég
verð 256 ára gamall, þ.e. n=4. Er ekki viss um að ég nái að sjá þann dag, en það væri svalt. Næsti
teningsdagur er svo 4^3=64, svo ég þarf að bíða talsvert lengi eftir því. Aftur á móti hlakka ég mikið
þrítugsaldursins: 32=2^5, 36=6^2 (ferningur!) og svo eru fjölmargar frumtölur þar á milli.
Á næsta ári verð ég þó fullkominn, 28 ára gamall. 28=14+7+4+2+1.
Jæja, yfir og út.